Bensín fannst í sýnum á Hjarðarhaga

Tveir menn létust í eldsvoðanum á Hjarðarhaga.
Tveir menn létust í eldsvoðanum á Hjarðarhaga. mbl.is/Eyþór Árnason

Bensín fannst í sýnum sem voru tekin í kjallaraíbúð á Hjarðar­haga í Vesturbænum, þar sem tveir menn létust í eldsvoða í síðasta mánuði. 

Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Krist­ín­ar­dótt­ir, yf­ir­lög­regluþjónn á rann­sókn­ar­sviði lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, í samtali við mbl.is, en rannsókn málsins er enn í gangi.

Næstu skref rannsóknarinnar eru að sögn Elínar skýrslutaka af vitnum ásamt slösuðum en hún segir rannsókn eldsvoðans vel á veg komna. 

Enginn með stöðu sakbornings

Enginn er með stöðu sakbornings í málinu og segir Elín stöðuna enn óbreytta. Hún telur bensínfundinn ekki fresta rannsókn um of. 

Fjór­ir menn bjuggu í kjall­ara­í­búðinni við Hjarðar­haga þar sem eld­ur­inn kom upp. Þrír þeirra voru í íbúðinni og lét­ust tveir þeirra. 

Menn­irn­ir sem lét­ust í elds­voðanum voru Banda­ríkjamaður á sex­tugs­aldri og Tékki á fer­tugs­aldri. Sá þriðji er Ung­verj­inn Sári Morg Ger­gö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert