Lögregla framkvæmdi handtökur í kjölfar húsleita á nokkrum stöðum á landinu í tengslum við fíkniefnaframleiðslu í gær.
Um samræmdar lögregluaðgerðir var að ræða að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Í tilkynningu lögreglu segir að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin sé tengjast fíkniefnaframleiðslu. Með aðgerðunum í gær hafi verið unnt að staðfesta þessar grunsemdir en rannsókn málsins sé á frumstigi.
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag, að því er segir í tilkynningunni.
Í aðgerðunum, sem hófust um klukkan 10 í gærmorgun, var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Málið er enn á viðkvæmu stigi og ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, að því er segir í tilkynningu lögreglu.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is var meðal annars farið í aðgerðir á Raufarhöfn og í Borgarnesi.