Fasteignamarkaðurinn hefur verið við stofuhita það sem af er ári að því er kemur fram í tilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).
Mánaðarskýrsla HMS fyrir júní er komin út.
Fjöldi kaupsamninga og verðþrýstingur hefur verið í samræmi við meðaltal síðastliðinna tíu ára. Þó seljast nýjar íbúðir verr en aðrar.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslunni.
Þar segir jafnframt að fasteignasalar telji að umsvif á fasteignamarkaðnum hafi verið frekar lítil í júní og meirihluti þeirra telji fasteignamarkaðinn, eins og sakir standa, vera á valdi kaupenda.
Merki eru um aukinn eftirspurnarþrýsting á leigumarkaði á síðustu mánuðum eftir að markaðurinn hafi kólnað nokkuð í fyrravetur. Á leiguvefnum Myigloo.is eru álíka margir virkir leitendur og um mitt ár i fyrra en þeir eru um tvöfalt fleiri en fjöldi skráðra leigusamninga á vefnum.
Umsvif á skammtímaleigumarkaði eru álíka mikil og í fyrra en umsvifin geta orðið meiri í sumar samanborið við síðustu tvö sumur.
Hrein ný lántaka var mjög lítil hjá bönkunum í apríl, þriðja mánuðinn í röð, þar sem álíka mikið var greitt upp af óverðtryggðum lánum og tekið var að láni í nýjum hreinum verðtryggðum lánum.
Hrein ný lántaka var aftur á móti töluverð hjá lífeyrissjóðunum. Veðsetningarhlutföll hjá lífeyrissjóðum eru almennt lægri en hjá bönkum en heimilin búa að töluverðum sparnaði þar sem innlán þeirra hafa aukist umfram ráðstöfunartekjur á síðustu misserum.
Á byggingarmarkaði jókst fjárfesting í íbúðarhúsnæði um tæpan fimmtung að raunvirði í fyrra eftir að hafa dregist saman árið 2023. Dregið hefur úr fjölgun starfsfólks í greininni í ár sem þó er bundin talsverðum árstíðasveiflum en að jafnaði störfuðu 5,4% fleiri í byggingariðnaði í fyrra en árið 2023.