Fluttur á sjúkrahús eftir alvarlega stunguárás

Meintur árásarmaður fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir miðnætti.
Meintur árásarmaður fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir miðnætti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús með alvarlega stunguáverka eftir líkamsárás í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu málið klukkan rétt rúmlega tíu í gærkvöldi.

Lögreglan hóf strax leit af meintum árásamanni og fannst viðkomandi á höfuðborgarsvæðinu fljótlega eftir miðnætti, að segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Vegna alvarleika málsins og rannsóknarhagsmuna, mun lögreglan fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum í dag.

Ástand þess er ráðist var á er stöðugt en rannsókn málsins er á frumstigi og getur lögreglan ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert