Lokun hefði áhrif á Ísland

Yrði Hormússundi lokað myndi olíuverð hækka mikið.
Yrði Hormússundi lokað myndi olíuverð hækka mikið. AFP

Loki Íranir Hormússundi hefði það gífurlegar afleiðingar fyrir heiminn allan, ekki síst Ísland. Þetta segir hagfræðingurinn Þórður Gunnarsson og nefnir þar sérstaklega áhrif á íslenskan sjávarútveg.

„Þetta hefur aldrei gerst en hefur oft verið hótað,“ segir Þórður en íranska þingið hefur samþykkt lokun á siglingaleiðinni sem um 20% allrar olíu í heiminum berast í gegnum. „Ef það á allt í einu að loka á fimmtung allrar framleiðslu þá auðvitað lamast alþjóðahagkerfið.“

Yrði Hormússundi lokað myndi olíuverð hækka mikið. Þórður segir að fyrstu áhrifin sem Ísland fyndi fyrir vera í sjávarútvegi, þar sem olíukostnaður sé næstmesti kostnaðurinn á eftir launum.

„Ef það verður alvöru framboðsskellur við lokun þessa sunds mun verðbólga um allan heim rjúka upp, rétt eins og eftir innrás Rússa í Úkraínu. Við munum náttúrulega finna fyrir því. Við sem útflutningshagkerfi þolum svona skarpa hækkun mjög illa.“

Þá bendir hann á að hærra olíuverð komi illa við flugiðnaðinn, sem hefði áhrif á ferðaþjónustu hér á landi. Álverin segir hann ekki í eins mikilli hættu, þar sem þau séu ekki eins háð olíu. Hann segir lokun á sundinu skaða Kína mest. „Mér finnst líklegt að þeir leyfi þessu ekki að gerast.“

Lesa má nán­ar um málið á bls. 12 og 13 í Morg­un­blaðinu og í Mogga-app­inu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert