Múmínálfaheimur rís í Kjarnaskógi

Glæsilega bláa Múmínálfaturninn má nú finna í Kjarnaskógi.
Glæsilega bláa Múmínálfaturninn má nú finna í Kjarnaskógi. Ljósmynd/Aðsend

Ævintýraheimur Múmínálfanna rís nú í Kjarnaskógi á Akureyri, en Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri skógræktarfélags Eyfirðinga segir skóginn tilvalinn ævintýraskóg fyrir verkefni sem þessi. 

„Þetta á sér langan aðdraganda, Kjarnaskógur er lýðheilsuparadís Akureyringa. Við höfum unnið skóginn út frá því, til að þjónusta allskonar útivist, þar á meðal erum við með þrjú leiksvæði sem eru mjög mikilvæg í því samhengi. Ekki bara vegna þess að þar eru leiktæki, heldur kemur þetta hreyfingu á fólkið,“ segir Ingólfur.

Unnið er að ævintýraheimi í Kjarnaskógi á Akureyri.
Unnið er að ævintýraheimi í Kjarnaskógi á Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Fullorðna fólkið dregið í göngutúra

Hann segir þau ungu geta dregið þá sem eldri eru í góða göngutúra, jafnvel þótt þeir nenni því ekki.

„Ég er til dæmis afi og fer með barnabarnið mitt á eitthvað leiksvæði og nenni ekkert að hreyfa mig en krakkinn veit af aparólunni á hinu leiksvæðinu og dregur mig þangað og svo veit hann af ærslabelgnum á þriðja svæðinu og úr þessu verður heljarinnar göngutúr.“

Hér má sjá inn í Múmínálfaturninn.
Hér má sjá inn í Múmínálfaturninn. Ljósmynd/Aðsend

Fleiri mannvirki í undirbúningi

Ingólfur segir staðinn tilvalinn ævintýraskóg því að trén eru svo kræklótt og ævintýraleg. Í kjölfarið hafi þau ákveðið að drífa verkefnið í gang.

„Þarna er trjálundur sem við höfum verið að reyna að finna fyrir hlutverk og hann á sér sögu aftur þegar forverar mínir voru að gróðursetja Kjarnaskóg en þá þurfti að prófa allskonar plöntur og þær sem tórðu voru Síberíulerkir sem var plantað í þennan reit.“

Enn á eftir að reisa fleiri mannvirki sem tengjast ævintýri Múmínálfanna. Meðal þess er Múmínbrúin, skipið og tjaldið. „Við vinnum að þvi í sumar að ýta þessu áfram,“ segir Ingólfur.

Það má finna tvær rennibrautir í Múmínálfaturninum.
Það má finna tvær rennibrautir í Múmínálfaturninum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert