Þóra Jónsdóttir skáld lést á hjúkrunarheimilinu Grund 30. júní sl., 100 ára að aldri.
Þóra var fædd 17. janúar 1925 á Bessastöðum á Álftanesi en fluttist á barnsaldri með fjölskyldu sinni að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru Jón H. Þorbergsson, bóndi á Laxamýri, og Elín Vigfúsdóttir, húsfreyja og skáld.
Þóra nam við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal á árunum 1940-1942 og síðar við Menntaskólann á Akureyri þar sem hún lauk stúdentsprófi árið 1948. Þóra kenndi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði veturinn 1948-1949 en hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún las bókmenntir við Hafnarháskóla frá 1949-1952. Eftir að hún kom aftur til Íslands fór Þóra í Kennaraskóla Íslands og lauk prófi þaðan árið 1968. Þóra starfaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur á árunum 1975-1982.
Fyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út árið 1973, en eftir það sendi hún frá sér fjölda ljóðabóka auk ljóðaþýðinga. Þá hafa komið út tvær bækur eftir Þóru með stuttum ljóðrænum, ævisögulegum prósatextum. Safnrit með ljóðum úr fyrstu sjö ljóðabókum Þóru kom út hjá bókaforlaginu Sölku haustið 2005 undir titlinum Landið í brjóstinu. Á skáldaþingi þótti Þóra sverja sig í ætt við módernista á borð við Hannes Pétursson og Þorstein frá Hamri, eins og þau sem skáldskap hennar greindu skrifuðu um. Auk skáldskaparins fékkst Þóra við myndlist og á mörgum kápum bóka hennar voru sömuleiðis myndir hennar.
Eiginmaður Þóru var Páll Flygenring ráðuneytisstjóri, hann lést árið 2017. Börn þeirra eru Björn hjartalæknir, Kristín hagfræðingur og Elín sendiherra.