Lögðu hald á fíkniefni og á annan tug milljóna

Lögreglan naut liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Lögreglan naut liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um hálft kíló af kókaíni, fjögur kíló af maríjúana og á annan tug milljóna króna í reiðufé við húsleitir í vikunni. Þá var stöðvuð kannabisræktun á tveimur stöðum.

Fjórir voru handteknir í aðgerðunum, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeim hefur þó öllum verið sleppt, samkvæmt Gunnari Rúnari Sveinbjörnssyni, upplýsingafulltrúa lögreglunnar.

Grunaðir um sölu á samfélagsmiðlum

Fjórmenningarnir eru grunaðir um umfangsmikla og skipulagða sölu og dreifingu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu, framleiðslu þeirra og peningaþvætti. M.a. sölu fíkniefna í gegnum samfélagsmiðla.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðirnar.

Rannsókn málsins miðar vel, að segir í tilkynningunni, en ekki var hægt að fá frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert