Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Laugardalnum í Reykjavík og í Kópavogi í gær.
Handtökurnar tengjast rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á máli sem snýr að skipulagðri brotastarfsemi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Fyrstu aðgerðirnar í málinu voru 18. júní og síðan þá er búið að fara í húsleitir á þremur stöðum.
„Í gær fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra í húsleitir á tveimur stöðum. Annars vegar í Laugardalnum í Reykjavík eins og fram hefur komið í fréttum og hins vegar í Kópavogi. Aðgerðirnar voru framkvæmdar sem liður í rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra og að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra,” segir í tilkynningunni.
Þar segir jafnframt að fimm einstaklingar séu í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Í dag verður metið hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim sjötta. Með þessum aðgerðum hefur lögreglan framkvæmt sex húsleitir víðs vegar á landinu.