Búið að opna Hvalfjarðargöngin á ný

Hvalfjarðargöng eru lokuð á meðan er verið að draga bíl …
Hvalfjarðargöng eru lokuð á meðan er verið að draga bíl úr göngunum. mbl.is/Eggert

Hvalfjarðargöng voru lokuð í stutta stund á meðan verið var að draga bíl úr göngunum. 

Göngunum var lokað upp úr klukkan 16. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar voru göngin opnuð á ný 16.44.

Búist er við margmenni á Írskum dögum sem fara fram nú á Akranesi en lokun ganganna tafði eflaust einhverja hátíðargesti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert