Sportbíll sagður hafa flogið út af og farið margar veltur

Tveir voru flutt­ir af vett­vangi með sjúkra­bíl en betur fór …
Tveir voru flutt­ir af vett­vangi með sjúkra­bíl en betur fór en á horfðist. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bílveltan sem varð á Krýsuvíkurvegi seint í gærkvöld var nokkuð alvarleg samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en betur fór þó en á horfðist.

Tveir voru flutt­ir af vett­vangi með sjúkra­bíl, líkt og greint var frá í gærkvöld.

Sjónarvottur segir að sportbíll hafi flogið út af og farið margar veltur. Lögregla getur ekki staðfest þær upplýsingar en staðfestir að aðeins ein bifreið hafi átt í hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert