Rekstrarniðurstaðan jákvæð um 599 milljónir

Ásdís Kristjánsdóttir er bæjarstjóri í Kópavogi.
Ásdís Kristjánsdóttir er bæjarstjóri í Kópavogi. mbl.is/Sigurður Bogi

Afkoma Kópavogsbæjar er 827 milljónum króna betri en áætlað hafði verið, samkvæmt árshlutareikningi sem lagður var fyrir bæjarráð Kópavogs í morgun.

Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar er jákvæð um 599 milljónir króna en gert hafði verið ráð fyrir rekstrarhalla upp á 228 milljónir króna. 

Árshlutareikningurinn sem nær yfir tímabilið 1. janúar til 30. júní 20, en stofnfjárfestingar á tímabilinu voru um 4,4 milljarðar og munar þar mestu um byggingu nýs Barnaskóla Kársness sem tók til starfa í upphafi vikunnar

Heildarskuldir samstæðunnar hækka um 314 milljónir króna á tímabilinu, en þar af hækkar reiknuð lífeyrisskuldbinding um rúmar 430 milljónir króna.

Heildarskuldir samstæðunnar eru því að lækka á föstu verðlagi, að segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Vextir og verðbólga hærri

Samkvæmt uppgjörinu er rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 276 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2025 en áætlun gerði ráð fyrir rekstrarhalla að fjárhæð 304 milljónir króna.

Veltufé frá rekstri samstæðu er rúmlega 1,7 milljarðar en framlegð samstæðu er tæplega 4,1 milljarður á misserinu, eða 13,5% af tekjum samstæðunnar, en 3,2 milljarðar og 10,7% ef framlag til lífeyrisskuldbindinga er talið með sem breytilegur kostnaður.

Vextir og verðbólga eru hærri en gert hafði verið ráð fyrir á fyrri hluta árs og innborganir á viðskiptakröfur hafa dregist meira en áætlað var, því eru fjármagnsgjöld samstæðunnar 380 milljónum króna hærri en áætlað hafði verið. Á móti kemur að bærinn hefur úthlutað byggingarlóðum á árinu 2025 og er tekið tillit til þess í þessu uppgjöri.

Hagræðingaraðgerðir skili sér af meiri þunga síðar

Haft er eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, að rekstur bæjarins sé áfram sterkur þrátt fyrir þráláta verðbólgu og háa vexti. Ráðist hafi verið í hagræðingaraðgerðir fyrr á árinu til að mæta kjarasamningum, sem muni skila sér af meiri þunga síðari hluta ársins.

„Mikilvægt er að standa vörð um grunnþjónustu bæjarins og mun það takast með ábyrgri og góðri fjármálastjórn,“ segir Ásdís. 

Afkoman er 830 milljónum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá er verulegt styrkleikamerki að veltufé frá rekstri sé rúmlega 1,7 milljarður króna og endurspeglar það svigrúm sem reksturinn gefur á fyrstu sex mánuðum ársins til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Heildarskuldir að undanskildum reiknuðum lífeyrisskuldbindingum eru að lækka um 120 milljónir króna þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir í bæjarfélaginu. Á föstu verðlagi eru heildarskuldir að lækka.“  



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert