Stefán E. Stefánsson
Spursmál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eftir stutt sumarleyfi. Í upphafi fyrsta þáttar verður upplýst um nýjar vendingar í njósnamáli PPP ehf. sem teygir sig djúpt inn í íslenskt stjórnkerfi.
Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í spilaranum hér ofan, á Spotify og YouTube, og er öllum aðgengileg.
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Hjörvar Hafliðason eða dr. Football eins og hann er gjarnan nefndur og Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur, fréttakonu á Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við þingflokksformenn þriggja stærstu flokkanna sem sæti eiga á Alþingi. Þau Guðmund Ara Sigurjónsson, frá Samfylkingu, Sigmar Guðmundsson, frá Viðreisn og Hildi Sverrisdóttur frá Sjálfstæðisflokki.
Spursmál verða á dagskrá alla föstudaga kl. 14 í vetur og þar verður farið vítt og breitt yfir sviðið og Ísland í brennidepli.
Fylgist með spennandi þætti á mbl.is.
