30 starfsmönnum sagt upp hjá PCC á Bakka

PCC Bakki Silicon stendur á Bakka, skammt frá Húsavík.
PCC Bakki Silicon stendur á Bakka, skammt frá Húsavík. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Alls hefur 30 starfsmönnum verið sagt upp í kísilmálmverksmiðju PCC BakkaSilicon á Húsavík.

Að sögn fyrirtækisins er ástæða uppsagnanna áframhaldandi óvissa á kísilmarkaði, að því er segir í tilkynningu.

Um 80 manns var sagt upp um miðjan júlí vegna tímabundinnar rekstrarstöðvunar fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert