Beint: Brunavarnir og öryggi til framtíðar

Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem …
Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit.

Af því tilefni standa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Samtök iðnaðarins sameiginlega að ráðstefnunni Brunavarnir og öryggi til framtíðar. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér fyrir neðan. Fundurinn hefst kl. 9. 

Á ráðstefnunni verður farið yfir helstu lærdóma síðustu fimm ára, hvaða breytingar hafa orðið á regluverki, ábyrgðarskiptingu og framtíðaráskoranir í brunavörnum, að því er segir í tilkynningu. 

Meðal spurninga sem leitast verður við að svara:

  • Hvernig stöndum við á Íslandi þegar kemur að brunavörnum?
  • Hvert er umfang bruna og brunatjóna hér á landi?
  • Hvaða tækifæri eru til að gera betur á þessu sviði?

Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða:

  • Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra ‍
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra‍
  • Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins - Hvað ef ég hefði…? - Samfélagsleg ábyrgð okkar allra‍
  • Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og markaðseftirlitssviðs HMS - Bræðraborgarstígur fimm árum síðar - frá harmleik til umbóta.‍
  • Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ.
  • Birgir Viðarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá.‍‍
  • Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS - Brunabótamat - öryggi almennings vegna fjárhagslegs tjóns af völdum bruna.‍
  • Guðni I. Pálsson, brunahönnuður hjá COWI, Brunahönnun bygginga - lærdómur, áskoranir og tækifæri
  • Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert