Ætla hvergi að hvika

Frá Bjarnarey. Þjóðlendukröfum ríkisins í eyjar verður mætt af hörku.
Frá Bjarnarey. Þjóðlendukröfum ríkisins í eyjar verður mætt af hörku. mbl.is/Eggert

Bæði Eyjamenn og Skagfirðingar eru staðfastir í þeirri ætlan sinni að halda sínum hlut gagnvart kröfum fjármála- og efnahagsráðherra um að úteyjar Vestmannaeyja sem og Drangey á Skagafirði verði úrskurðaðar þjóðlendur. Telur hann rétt að óbyggðanefnd skeri þar úr.

Hyggst ríkið því halda áfram málarekstri fyrir óbyggðanefnd hvað þessar eyjar varðar, enda þótt fallið hafi verið frá kröfum í langflestar eyjar og sker fyrir Íslandsströndum. Niðurstaða þar um var kunngjörð fyrir skemmstu.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að Eyjamenn ætli ekki að láta fjármála- og efnahagsráðuneytið, eða einhvern á þess vegum, ákveða að úteyjar Vestmannaeyja verði þjóðlendur.

„Það munum við aldrei sætta okkur við. Úteyjarnar verða okkar eign, hér eftir sem hingað til,“ segir Íris.

„Mér finnst það vera með ólíkindum að þeir skuli ásælast Drangey,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri í Skagafirði. Drangey sé eyja sem hafi verið í eigu sveitarfélagsins og forvera þess í langan tíma. Bæði Íris og Sigfús Ingi segja eignarhald sveitarfélaganna á umræddum eyjum hafið yfir vafa, enda liggi fyrir skjöl sem staðfesti það. 

Nánar má lesa um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag og í Mogga-appinu

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert