Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við tölvupósti netþrjóta sem nú eru að senda út í nafni Ríkisskattstjóra.
Lögreglan segir í tilkynningu að hér sé um svik að ræða en með póstinum er verið að reyna að færa fólk inn á hlekk sem er til að opna rafræn skilríki.
„Við vörum við þessum pósti, en hann á að fara sömu leið og allir aðrir svikapóstar – eða beinustu leið í ruslið,“ segir í tilkynningunni.
Þá hvetur lögreglan fólk í þessum tilfellum sem öðrum að vera athugult og kynna sér m.a. ávallt tölvupóstfang sendanda.
„Netfangið noreply@smartijcc.com er t.d. með öllu ótengt skattinum. Sé ýtt á hlekkinn birtist enn fremur ekki síðan island.is.
Og loks má nefna að heimilisfang Skattsins í tölvupósti netþrjótanna er rangt,“ segir enn fremur í tilkynningu lögreglunnar.
