Umfangsmikil flugslysaæfing fer fram á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag þar sem heildarferli aðgerða vegna flugslysa verður æft.
Gera má ráð fyrir að þátttakendur í flugslysaæfingunni verði á bilinu 300 til 350.
Slysavettvangur verður settur upp og til þess verður komið fyrir braki á hluta vallarsvæðisins, og eldur verður kveiktur til að skapa sem raunverulegastar aðstæður. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu gætu því séð reyk koma frá Reykjavíkurflugvallarsvæðinu og er það vegna æfingarinnar.
Þá má búast við aukinni umferð viðbragðsaðila nærri flugvellinum vegna æfingarinnar og gæti umferð þá mögulega takmarkast vegna þessa milli kl. 12 og 16.
Helstu viðbragðsaðilar innan sem utan flugvallarins koma að æfingunni, þ.e. almannavarnir, Isavia, starfsfólk Reykjavíkurflugvallar, björgunarsveitir, starfsfólk Landspítalans og heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvilið, Landhelgisgæslan, Rauði krossinn og fleiri sem að slysaviðbúnaði koma. Þá taka aðrir sjálfboðaliðar að sér að leika slasað fólk á vettvangi.
Á þriggja til fjögurra ára fresti er haldin svo stór æfing hér á landi, en tvær til fjórar æfingar eru haldnar á hverju ári.
