Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir að þjónusta sérfræðilækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri sé afar mikilvæg þjónusta sem þurfi að tryggja með öllum ráðum. „Sú sem hér stendur mun ekki koma að þessu máli. Ég hef sagt mig frá því vegna skyldleika við einn af þeim aðilum sem þarna starfa þannig að það yrði þá annar ráðherra.“
Þetta kom fram í máli Ölmu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag en þar gerði Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, uppsögn ferliverkasamninga lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri að umtalsefni.
Hún sagði ljóst að þjónustan myndi dragast verulega saman ef ekki myndi finnast lausn á málinu.
„Staðan á sjúkrahúsinu er því grafalvarleg. Um er ræða 13 sérgreinalækna í hjarta-, krabbameins-, kvensjúkdóma-, meltingarfæra- og lyflækningum, þjónustu sem íbúar á Norðurlandi og víðar hafa hingað til getað treyst á og er okkur nauðsynleg. Þetta veldur eðlilega miklum áhyggjum, ekki aðeins meðal starfsfólks og sjúklinga heldur einnig heilsugæslulækna á upptökusvæði SAk og lækna á Landspítala sem sjá ekki fram á að geta tekið við öllum þeim sjúklingum sem munu þá leita suður ef þjónustan fæst ekki lengur á Akureyri. Þetta er því, má segja, kerfislægt vandamál, ekki staðbundið,“ sagði Ingibjörg.
Hún spurði Ölmu hvort hún hefði verið í samráði við stjórn Sjúkrahússins á Akureyri áður en þessi ákvörðun hefði verið tekin.
„Er ráðuneytið virkt í því að finna lausn á málinu með stjórnendum SAk? Síðast en ekki síst: Ætlar ráðherra að tryggja að sérfræðiþjónusta haldist á Akureyri svo landsbyggðarfólk haldi áfram jöfnum rétti til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð?“
Alma benti á að málið hefði hafist í fyrra með bréfi frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, var fjármálaráðherra.
„Þar var bent á svokallaða gerviverktöku og kosti og galla við verktakasamninga, en að gerviverktöku ætti að uppræta því að hún gæti sætt endurákvörðun skattyfirvalda. Heilbrigðisráðuneytið fylgdi þessu erindi eftir með bréfi í mars, sem fór til allra forstjóra heilbrigðisstofnana þar sem var verið að árétta þennan mun á þessum samningum, og síðan í maí og þar stendur orðrétt, með leyfi forseta: Forstjórar fari yfir verksamninga sína við heilbrigðisstarfsmenn með ákveðin sjónarmið í huga.
Þarna er sem sagt forstjórum uppálagt að fara yfir samninga og sjá hvort um sé að ræða gerviverktöku. Það er rætt að það eigi auðvitað helst ekki að hafa verktakasamninga, heldur reyna að manna með föstum mannskap, en að það sé hægt í undantekningartilvikum,“ sagði ráðherra.
Hún bætti við að hún hefði ekki verið í neinu samráði við forstjóra sjúkrahússins áður en þetta mál var tekið upp.
„Það er ekki búið að segja upp þessum samningum en forstjóri vinnur að lausnum. Síðan hefur verið spurt hvort ráðuneytið sé með í ráðum og þá kom ákveðin fyrirspurn frá forstjóra í liðinni viku,“ sagði Alma.
Ingibjörg benti á í seinni ræðu sinni að annað hefði komið fram á fundi þingmanna í kjördæmaviku með stjórn Sjúkrahússins á Akureyri í liðinni viku. En Ingibjörg tók fram að hún ætlaði ekki að munnhöggvast við ráðherra, það væri af og frá.
Málið snerist í raun um þjónustuna sem væri í boði í heimabyggð sem væri þjónusta sem íbúar hefðu hingað til getað treyst á.
„Ætlar hæstvirtur ráðherra að tryggja að sérfræðiþjónustan sem nú er til staðar á svæðinu haldist svo að fólkið geti átt jafnan rétt á þessari heilbrigðisþjónustu í heimabyggð sem fyrir er og er tilefni til að staldra við og fresta umræddum í rauninni uppsögnum þangað til önnur lausn finnst,“ spurði Ingibjörg.
Alma tók fram að hún væri sammála þingmanninum um að þetta væri afar mikilvæg þjónusta og hana þyrfti að tryggja með öllum ráðum.
„Eins og ég nefndi áðan þá vinnur forstjóri að lausnum og er í lófa lagið að fresta þessum aðgerðum. Sú sem hér stendur mun ekki koma að þessu máli. Ég hef sagt mig frá því vegna skyldleika við einn af þeim aðilum sem þarna starfa þannig að það yrði þá annar ráðherra. Ég hef auðvitað metið hæfi mitt skref fyrir skref í þessu máli en nú er komið ákveðið erindi frá forstjóra. Það kom í liðinni viku og þá hafði ég þegar lagt drög að því. Þannig að sú sem hér stendur mun ekki koma að lausn þessa máls en vonandi kemur annar í hennar stað,“ sagði í seinna svari ráðherra.