Riðuveiki í sauðfé hefur verið staðfest á bænum Kirkjuhóli í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sent tilmæli til ráðherra um niðurskurð á hluta fjárins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.
Grunur um riðuveiki vaknaði í síðustu viku hjá eigendum fjárins vegna dæmigerðra einkenna í einni þriggja vetra á og höfðu þeir umsvifalaust samband við Matvælastofnun.
„Kindin var aflífuð, sýni tekin úr henni og sett var á flutningsbann vegna rökstudds gruns um riðuveiki. Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum hefur staðfest hefðbundna riðu í sýnunum,“ segir í tilkynningunni.
Faraldsfræðileg rannsókn er í gangi og stofnunin hefur sent tilmæli til ráðherra að fyrirskipa niðurskurð á hluta fjárins.
„Niðurskurður er skipulagður samkvæmt landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu og gildandi reglugerðum þar um. Nokkur hluti fjárins á bænum er með verndandi eða mögulega verndandi arfgerð gegn riðu sem hefur áhrif á ákvörðunartöku um umfang niðurskurðar,“ segir í tilkynningunni.
