Andlát: Björk Aðalsteinsdóttir

Björk Aðalsteinsdóttir.
Björk Aðalsteinsdóttir.

Björk Aðalsteinsdóttir, húsmóðir og handmenntakennari á Eskifirði, lést á dvalarheimilinu Hulduhlíð 2. október síðastliðinn, 73 ára að aldri.

Björk fæddist á Eskifirði 26. maí 1952. Foreldrar hennar voru Aðalsteinn Jónsson, útgerðarmaður á Eskifirði, gjarnan nefndur Alli ríki, og Guðlaug Kristbjörg Stefánsdóttir húsmóðir. Systkini Bjarkar voru Eiríka Elfa Aðalsteinsdóttir, f. 1948, d. 1999, og Kristinn Aðalsteinsson, f. 1956.

Björk ólst upp á Eskifirði og bjó þar alla sína tíð, fyrir utan námsárin. Hún stundaði nám í Kennaraskólanum og útskrifaðist þaðan sem handmenntakennari. Björk starfaði sem slíkur um hríð í Eskifjarðarskóla.

Eftirlifandi eiginmaður Bjarkar er Þorsteinn Kristjánsson, f. 1950, skipstjóri og núverandi forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju. Þau gengu í hjónaband árið 1974 og hafa um árabil rekið og verið aðaleigendur Eskju.

Börn Bjarkar og Þorsteins eru Daði Þorsteinsson, f. 1974, sambýliskona Sædís Eva Birgisdóttir, Erna Þorsteinsdóttir, f. 1977, sambýlismaður Ingólfur Davíð Sigurðsson, og Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson, f. 1982, sambýliskona Ása María Þórhallsdóttir.

Fyrir átti Björk soninn Elfar Aðalsteins, f. 1971, hann er giftur Önnu Maríu Pitt. Sonur Þorsteins af fyrra sambandi er Guðjón Þór Þorsteinsson, f. 1970, giftur Matthildi Þórarinsdóttur.

Barnabörn Bjarkar og Þorsteins eru 18 talsins og langömmu- og langafabörnin fimm.

Útför Bjarkar fer fram í Eskifjarðarkirkju laugardaginn 11. október klukkan 14.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert