Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvarnir fyrir Suðurland, Faxaflóa og Suðausturland á morgun vegna vestan storms eða hvassviðris.
Viðvarirnar taka gildi eftir hádegi á morgun og verða í gildi fram eftir kvöldi. Spáð er vindi á bilinu 15-23 m/s en vindhviður geta náð allt að 35 m/s við fjöll og geta akstursskilyrði orðið varasöm fyrir ökutæki sem viðkvæm eru fyrir vindi.
