Öryggisvörðurinn í þinghúsinu rekinn

Öryggisvörðurinn fylgdi ekki verklagsreglum.
Öryggisvörðurinn fylgdi ekki verklagsreglum. mbl.is/Karítas

Öryggisvörðurinn sem var á vakt þegar maður braust inn í Alþingishúsið og dvaldi þar yfir nótt um helgina hefur verið rekinn.

Þetta staðfesti Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas, í samtali við RÚV.

Að morgni sunnudags var maður handtekinn eftir að hafa komist inn í þinghúsið í gegnum ólæstar dyr. Samkvæmt frétt RÚV tókst manninum að sannfæra öryggisvörðinn um að hann ætti erindi í húsið þegar þeir áttu í samskiptum.

Maðurinn hafði þó ekkert erindi þar. Hann var sagður friðsæll og framdi engin skemmdarverk, en dvaldi í húsinu í leyfisleysi og dreifði pappírum þar sem fram kom að hann væri „forseti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert