Fjölskylda Margrétar Kristínar Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, biðlar til íslenskra stjórnvalda að beita sér með öllum mætti að losa hana úr haldi tafarlaust sem og aðra í áhöfn Frelsisflotans svonefnda. Áhöfn skipsins Conscience og átta annarra báta, sem sigldu undir merkjum Frelsisflotans áleiðis til Gasa, var stöðvuð af Ísrael á alþjóðlegu hafsvæði í nótt.
Í ákalli sem fjölskyldan hefur sent frá sér segir að um borð í The Conscience, skipinu sem Margrét Kristín sigldi með, voru hátt í hundrað heilbrigðisstarfsmenn, blaðamenn og friðarsinnar í fullkomlega lögmætum erindagjörðum, að koma neyðaraðstoð og heilbrigðisstarfsfólki til þjáðra og sveltandi íbúa Gasa.
Fjölskyldan segir í ákallinu að lífsnauðsynjar á borð við lyf, hjúkrunarvörur og mataraðstoð upp á 13 milljónir króna, hjálpargögn sem sé kerfisbundið haldið frá Gasasvæðinu af ísraelskum stjórnvöldum.
„Áhyggjur okkar fjölskyldu Möggu Stínu og vina hennar eru eðlilega miklar af framvindu mála. Einkum þegar hugað er að þeirri meðferð sem hún kemur að öllum líkindum til með að verða fyrir af hendi Ísraelshers. Við skorum á íslensku ríkisstjórnina og almenning að fordæma ólöglega handtöku Ísraela á almennum borgurum og krefjast þess að allir sjálfboðaliðar verði látnir lausir tafarlaust,“ segir í ákalli fjölskyldunnar.
Þar segir enn fremur að Ísrael standi engin ógn af þeim skipum sem sigli undir merkjum Frelsisflotans.
„Engu að síður hafa ísraelsk stjórnvöld gert skipin sem á undan sigldu upptæk með ofbeldi og ógnunum, rænt skipverjum og fargað matvælum og lyfjum sem um borð voru. Fréttir bárust í kjölfarið af illri meðferð Ísraels á fólkinu sem haldið er í Ktzi’ot-fangelsinu. Þeim hefur verið misþyrmt, neitað um næringu, vatn, svefn og lífsnauðsynleg lyf tekin af þeim. Mannréttindi þeirra eru virt að vettugi, rétt eins og Ísrael hefur virt mannréttindi palestínsku þjóðarinnar að vettugi allt frá byrjun hernáms og þjóðarmorðs Ísraels í Palestínu,“ segir í ákalli fjölskyldunnar.
„Við skorum á íslensku ríkisstjórnina og almenning að fordæma ólöglega handtöku Ísraela á almennum borgurum og krefjast þess að allir sjálfboðaliðar verði látnir lausir tafarlaust," segir að lokum, en undir ákallið rita þær Elsa María Blöndal, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Sólveig Hauksdóttir, dóttir, systir og móðir Möggu Stínu.
Uppfært kl. 11:22.
Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla vegna málsins við utanríkisráðuneytið kl. 15 í dag. Félagið krefst þess að neyðaraðstoð verði hleypt inn á svæðið auk þess sem þrýst sé á íslensk stjórnvöld að tryggja öryggi og réttinni áhafnar Frelsisflotans.