Stýrivextir Seðlabankans óbreyttir

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,50%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Þetta er annað sinn í röð sem peningastefnunefndin ákveður að halda vöxtum bankans óbreyttum. 

„Verðbólga var 4,1% í september og jókst um 0,3 prósentur frá mánuðinum á undan. Aukningin var fyrirsjáanleg og endurspeglar að töluverðu leyti óhagstæð grunnáhrif,” segir í tilkynningu.

Fram kemur að greinilegur viðsnúningur hafi orðið í þróun efnahagsumsvifa undanfarið og spennan í þjóðarbúinu hafi hjaðnað í takt við þétt taumhald peningastefnunnar.

„Seiglan í þjóðarbúskapnum er þó áfram nokkur, launahækkanir mælast töluverðar og þótt verðbólguvæntingar hafi lækkað síðustu misseri mælast þær enn yfir markmiði,” segir í tilkynningunni.

„Margt hefur þokast í rétta átt en þær aðstæður hafa ekki enn skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2½% markmiði bankans.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert