Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um að ísraelsk stjórnvöld hafi í dag farið um borð í skip, Conscience, sem sigldi áleiðis í áttina til Gasa. Íslenskur ríkisborgari sem var um borð hefur verið handtekinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, var um borð í skipinu og var handtekin.
„Í samskiptum við fulltrúa ísraelskra stjórnvalda vegna þessa máls í vikunni hefur verið áréttað að íslensk stjórnvöld gerðu þá kröfu að Ísrael færi að alþjóðalögum og að mannréttinda þeirra verði gætt sem væru um borð í umræddu skipi. Utanríkisráðuneytið er í samskiptum við þar til bæra aðila til að veita viðkomandi einstaklingi borgaraþjónustu og hefur enn fremur verið í sambandi við aðstandendur viðkomandi. Áfram verður fylgst með málinu,“ segir í tilkynningunni.
/frimg/1/59/98/1599812.jpg)