Friðarsúlan tendruð en engin athöfn

Friðarsúlan var endurbætt á síðasta ári þegar tæknibúnaður var endurbættur …
Friðarsúlan var endurbætt á síðasta ári þegar tæknibúnaður var endurbættur og uppfærður og „óskabrunnur“ sá sem ljóssúlan rís upp úr var lagfærður sem og pallur umhverfis hann. mbl.is/Ólafur Árdal

Ljós Friðarsúlunnar í Viðey var tendrað klukkan 20 í kvöld, á fæðingardegi Johns Lennons, eiginmanns Yoko Ono.

Friðarsúlan er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hún hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.

Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar var þó aflýst vegna mikils sjógangs og ölduhæðar á Faxaflóa en venju samkvæmt hefur friðsæl athöfn verið haldin við tendrun Friðarsúlunnar til að heiðra minningu tónlistarmannsins Johns Lennons.

Öryggissjónarmið að leiðarljósi

Hvalaskoðunarfyrirtækið Elding, sem sér um ferjuferðir út í Viðey, sagði aðstæður óhagstæðar til siglinga yfir sundið og aflýsti öllum ferjuferðum í dag.

Ákvörðunin var tekin með öryggissjónarmið að leiðarljósi og í samráði við viðbragðsaðila og þá sem að viðburðinum koma.

Hægt var að fylgjast með tendruninni í beinu streymi á heimasíðu Imagine Peace Tower.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert