Kristján Arnar skipaður skólameistari

Guðmundur ásamt Kristjáni.
Guðmundur ásamt Kristjáni. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kristján Arnar Ingason hefur verið skipaður skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ af Guðmundi Inga Kristinssyni, mennta- og barnamálaráðherra. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Skipunin nær til fimm ára og tekur hann við starfinu 1. desember. 

„Kristján Arnar hefur starfað sem deildarstjóri í Breiðholtsskóla frá árinu 2024 en áður starfaði hann sem skólastjóri í grunnskólanum á Ísafirði og stýrði Birkimelsskóla auk þess að hafa starfað í Fellaskóla og Réttarholtsskóla,“ segir í tilkynningunni. 

Kristján lauk M.Ed.-gráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands og B.Ed.-gráðu til kennsluréttinda frá Kennaraháskóla Íslands. Alls sóttu sjö um embættið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert