Þátttaka kvenna í krabbameinsskimun hefur aukist

Samkvæmt gæðavísum sem embætti landlæknis hefur gefið út var þátttaka …
Samkvæmt gæðavísum sem embætti landlæknis hefur gefið út var þátttaka kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini 61 prósent á síðasta ári. Þetta er umtalsverð aukning frá árinu áður, þegar hún var 56 prósent. Ljósmynd/Colourbox

Þátttaka kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini hefur aukist verulega undanfarin ár og hefur þátttaka í leghálsskimunum einnig verið á uppleið. Meðal nýjunga í þjónustu eru opin hús og síðdegisopnanir þar sem boðið er upp á leghálsskimanir án tímabókana.

Þetta segir í tilkynningu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Samkvæmt gæðavísum sem Embætti landlæknis hefur gefið út var þátttaka kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini 61 prósent á síðasta ári. Þetta er umtalsverð aukning frá árinu áður, þegar hún var 56 prósent.

Konur á aldrinum 40 til 74 ára fá reglulega boð í skimun fyrir brjóstakrabbameini og fer skimunin fram hjá Brjóstamiðstöð Landspítalans, á Sjúkrahúsinu á Akureyri og í færanlegri skimunarstöð sem fer reglulega um landið.

Þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini hefur líka aukist milli ára. Í fyrra tóku 64 prósent þátt en árið áður, 2023, tóku 62 prósent þátt. Konur á aldrinum 23 til 64 ára fá reglulega boð í leghálsskimun og fer skimunin fram á heilsugæslustöðvum um land allt.

Erlendar konur ólíklegri til að fara í skimun

Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins heldur utan um krabbameinsskimanir á landinu. Í tilkynningunni er vísað í grein Ágústs Inga Ágústssonar, yfirlæknis miðstöðvarinnar, sem birtist á Vísi í gær. Þar fer hann yfir árangurinn og verkefnin fram undan og bendir á að markmiðið sé að þátttaka í skimunum verði að minnsta kosti 75 prósent.

Til að auka þátttöku í skimunum þurfi að ná til þeirra hópa sem séu ólíklegastir til að mæta. Undanfarin ár sé þátttakan lökust meðal kvenna í yngstu aldurshópunum og mikill munur sé einnig á þátttöku eftir ríkisfangi, en erlendar konur mæti mun síður í skimanir en konur með íslenskt ríkisfang.

Þátttaka í skimunum hefur verið lökust meðal kvenna í yngri …
Þátttaka í skimunum hefur verið lökust meðal kvenna í yngri aldurshópum undanfarin ár. mbl.is/Árni Sæberg

„Ef skoðuð er þátttaka kvenna í leghálsskimun eftir ríkisfangi þá má sjá að þátttaka kvenna með íslenskt ríkisfang nær markmiðinu um 75 prósent þátttöku og þátttaka íslenskra kvenna í brjóstaskimun fer nærri því markmiði. Það sem dregur þátttökuna niður er dræm þátttaka kvenna með erlent ríkisfang. Aðeins 31 prósent þess hóps kom í leghálsskimun og 23 prósent í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Hlutfallið er að aukast en þar þurfum við að gera enn betur,“ skrifaði hann.

Þá sé reynt að auka þekkingu á fyrirkomulagi krabbameinsskimana hjá konum af erlendum uppruna og bæta þátttöku þeirra í skimunum. Búast megi við því að hluti þessara kvenna mæti í skimanir fyrir krabbameinum í sínu heimalandi en ef þær geri það ekki vilji læknasamfélagið að sem flestar fái þjónustuna hér á landi.

Gott aðgengi er lykilatriði

Þá segir í tilkynningunni að gott aðgengi sé lykilatriði í skimunum. Allar upplýsingar um krabbameinsskimanir megi finna á vefnum skimanir.is og auðvelt sé að bóka tíma í leghálssýnatöku í gegnum Heilsuveru og í brjóstaskimun hjá Brjóstamiðstöð Landspítalans.

Einnig hafi gefið góða raun að bjóða upp á opna tíma í leghálssýnatöku á heilsugæslustöðvum. Þar geti konur sem hafa fengið boð mætt á þá stöð sem þeim hentar án þess að bóka tíma og í sumum tilvikum eftir hefðbundinn vinnutíma.

Kannanir sýni að langflestar konur vilji mæta í krabbameinsskimanir og ætli sér að fara í skimun þegar boð berst. Þannig sé ástæðan fyrir því að hluti kvenna sem fær boð fari ekki í skimun að þær fresti því af einhverjum ástæðum, ekki að þær vilji ekki fara.

„Skimanir fyrir krabbameini eru gríðarlega mikilvægar til að draga úr sjúkdómsbyrði og dauðsföllum af völdum krabbameina. Spár fyrir næstu ár og áratugi gera ráð fyrir því að nýgengi krabbameina aukist verulega. Það skiptir því sífellt meira máli að koma í skimun þegar boðið berst,“ skrifaði Ágúst Ingi að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert