Viðburði aflýst vegna mikils sjógangs

Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey í dag hefur verið aflýst vegna mikils sjógangs og ölduhæðar á Faxaflóa.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar segir að venju samkvæmt hafi verið haldin athöfn við tendrun Friðarsúlunnar til að heiðra minningu tónlistarmannsins John Lennons.

„Friðarsúlan er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfriði. Ljós Friðarsúlunnar verður eftir sem áður tendrað klukkan 20.00 í kvöld, á fæðingardegi eiginmanns hennar John Lennons.

Elding sem sér um ferjuferðir út í Viðey segir aðstæður óhagstæðar til siglinga yfir sundið og hefur aflýst öllum ferjuferðum í dag. Þó veður geti virst ágætt skal öryggi ávallt haft í fyrirrúmi og því er þessi ákvörðun tekin í samráði við þá sem að viðburðinum koma og viðbragðsaðila,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir að þrátt fyrir að viðburðinum sé aflýst þá sé hægt fylgjast með tendruninni í beinu streymi á heimasíðu IMAGINE PEACE TOWER klukkan 20.00 í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert