Yngstu börn sem hafa fengið leikskólavist í haust í leikskólum Kópavogs eru fædd í júlí 2024 og voru því þrettán mánaða þegar aðlögun hófst í ágúst.
Aðlögun yngstu barna er nú nær lokið í Kópavogi en hún fór að mestu leyti fram í ágúst og september.
Vel hefur gengið að ráða starfsfólk og starfsemi leikskólanna er komin á skrið eftir sumarleyfi, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Þar segir að leikskólarýmum í Kópavogi hafi fjölgað frá því í fyrra en 40 börn eru í leikskólahluta Barnaskóla Kársness sem tók til starfa í ágúst. Á næsta ári er stefnt að opnun nýs leikskóla við Skólatröð.
„Frá því Kópavogsmódelið var innleitt árið 2023 hefur bæði skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Kópavogi tekið stakkaskiptum. Betur gengur að manna leikskóla í Kópavogi og því hægt að bjóða fleiri börnum leikskólapláss. Boðið er upp á mikinn sveigjanleika í skráningu leikskólatíma sem foreldrar hafa nýtt sér. Þá hafa tæplega 30% foreldra nýtt sér gjaldfrjálsan leikskóla og stytt dvöl barna í 30 tíma á viku,” segir í tilkynningunni.
„Þess má geta að hlutfall fagmenntaðra leikskólakennara í Kópavogi er með því hæsta á landinu eða 36%, alls eru um 51% með háskólamenntun í leikskólum bæjarins. Starfsfólk sem er í leikskólakennaranámi fær umtalsverða námsstyrki frá sveitarfélaginu til þess að geta stundað námið á vinnutíma og eru um 50 starfsmenn í leikskólakennaranámi um þessar mundir,” segir þar jafnframt.
