Bergþór hættir við framboð til varaformanns

Bergþór á landsþingi Miðflokksins í dag.
Bergþór á landsþingi Miðflokksins í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur ákveðið að draga til baka framboð sitt varaformanns flokksins, en kosning í embættið fer fram á landsþingi flokksins á morgun. Hann telur rétt að gefa nýju fólki tækifæri og fá það inn í forystusveitina.

Bergþór greindi frá þessu á Facebook-sinni rétt í þessu, en áður hafði hann tilkynnt fulltrúum á landsþingi um ákvörðun sína.

„Nú er rétti tíminn til að fá nýtt fólk að forystusveitinni. Ég hef skynjað sterkt vaxandi vilja til að gera breytingar og fá nýtt fólk að borðinu í samtölum mínum við flokksmenn í vikunni. Það er styrkleikamerki og ég fagna því,“ segir Bergþór í færslu sinni.

Snorri Másson og Ingibjörg Davíðsdóttir gefa bæði áfram kost á sér í embættið og verður kosið á milli þeirra tveggja á morgun.

Í færslu sinni segir Bergþór það hafa verið sérstaklega gaman að sjá ungliðahreyfinguna eflast og þann stóra hóp sem hafi lagt leið sína á landsþingið.

„Ég vil því áfram leggja mitt af mörkum til að gefa nýju fólki tækifæri, með sína nálgun á stór verkefni, undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Ég fer þó ekki langt og verð blóðugur upp að öxlum í þinginu hér eftir sem hingað til að tala fyrir stefnu Miðflokksins en hef nú loks svigrúm til að sinna kjördæminu mínu og ennfrekar málum atvinnulífsins í atvinnuveganefnd. Ekki veitir af,“ segir Bergþór jafnframt og þakkar fyrir stuðninginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert