Nýlega barst hreppsnefnd Tjörneshrepps bréf frá Jöfnunarsjóði um sérstakt fólksfækkunarframlag til hreppsins upp á tæplega 248 milljónir króna. Tjörneshreppur hafði ekki óskað eftir slíku framlagi og kom þetta verulega á óvart.
Fram kemur í tilkynningu frá oddvita hreppsins, Aðalsteini Jóhannesi Halldórssyni, að íbúafjöldi í Tjörneshreppi hafi verið stöðugur síðustu árin, þjónustustig við íbúa sé gott og fjárhagsstaða hreppsins er sterk.
„Á fundi hreppsnefndar Tjörneshrepps þann 13. október var samþykkt samhljóða að afþakka framlag Jöfnunarsjóðs. Í fundargerð hreppsnefndar kemur fram að svona hátt framlag sé fáránlegt og hreppurinn lifi vel án þess,“ segir í tilkynningu.
