Bruninn á Siglufirði: Erum búnir að ná yfirhöndinni

Frá slökkvistarfi á Siglufirði í gærkvöld.
Frá slökkvistarfi á Siglufirði í gærkvöld. mbl.is/Sigurður Ægisson

Slökkvilið Fjallabyggðar ásamt slökkviliði Dalvíkur og Akureyrar er enn að störfum eftir að eldur kviknaði í Primex-verksmiðjunni á Siglufirði um klukkan 20 í gærkvöld.

„Við erum búnir að ná yfirhöndinni og erum þessa stundina að slökkva glæður og eldhreiður sem eru í þakinu en þetta er mjög flókið verkefni,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar, í samtali við mbl.is.

Hann segir að þurft hafi að fara í þá vinnu að rífa þakið og standi sú vinna enn yfir en notuð er til þess stórtæk vinnuvél.

„Þessi vinna tekur svolítinn tíma og ég á von á því að við verðum með brunavakt við húsið í dag. Þetta er stórt og flókið hús,“ segir hann.

Jóhann segir að húsnæðið sé mikið skemmt en segir erfitt að meta tjónið en eldurinn fór í allt þakið á einni byggingunni að hans sögn. Hann segir að um 40 manns hafi verið að störfum í alla nótt. Hann segir að af og til hafi vindur rokið upp í nótt sem hafi torveldað slökkvistarfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert