Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö stór fíkniefnamál sem tengjast komu Norrænu til Seyðisfjarðar í september.
Lögreglan segir að tæplega sjö kíló af kókaíni hafi fundist í bifreið við eftirlit tollgæslu og lögreglu á Austurlandi fyrri hlutann í september.
„Einn maður var handtekinn á Seyðisfirði í kjölfarið og annar síðar á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem handtekinn var á Seyðisfirði sætir gæsluvarðhaldi en hinn var látinn laus eftir húsleit og yfirheyrslu. Rannsókn málsins er langt komin,“ segir í tilkynningu.
Í seinna málinu var lagt hald á 15 kg af ketamíni og 5 kg af MDMA-kristal að sögn lögreglu.
„Þetta er langmesta magn ketamíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Efnin fundust í bifreið við eftirlit lögreglu og tollgæslu þann 19. september. Þrír voru handteknir vegna málsins, ökumaður og tveir aðrir. Allir þrír hafa sætt gæsluvarðhaldi frá því málið kom upp,“ segir lögreglan enn fremur.
Tekið er fram að málin hafi verið unnin í samstarfi lögreglunnar á Austurlandi, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslunnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer nú með rannsóknarforræði málanna. Þá aðstoðuðu lögreglan á Norðurlandi eystra og sérsveit ríkislögreglustjóra við aðgerðir seinna málsins.
Allir hinir handteknu eru erlendir ríkisborgarar en hluti þeirra er búsettur hér á landi að sögn lögreglu.