Loka þarf hringveginum norðan við Borgarnes frá klukkan 8 til 18 vegna malbikunarframkvæmda við veginn á morgun, fimmtudag. Gerð verður hjáleið en ekki er úr vegi að vara ökumenn við þeim aðstæðum sem verða á morgun.
Hjáleið verður um Borgarfjarðarbraut sunnan við Borgarfjarðarbrú.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Malbikunarstöðinni Höfða sem sér um framkvæmdina.

