Mikið álag er á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík og margir sem bíða eftir þjónustu. Á bráðamóttökunni er forgangsraðað eftir bráðleika.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum.
„Við aðstæður eins og nú eru getur fólk, sem leita þarf aðstoðar vegna vægari slysa eða veikinda, búist við að bíða lengur en annars eftir þjónustu. Ef því verður mögulega við komið er þess vegna æskilegt að reyna að leita annað.
Fólk, sem er ekki í bráðri hættu, er beðið um að hringja fyrst í 1700 eða leita upplýsinga á netspjalli Heilsuveru áður en leitað er á bráðamóttökuna,“ segir í tilkynningunni.
