Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hvort ráðherra hygðist „kæfa fyrirtækið Vélfag“ í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.
Sigmundur Davíð sagði að um væri að ræða hátæknifyrirtæki sem skapaði fjölda starfa á Akureyri og Ólafsfirði og væri mikilvægt fyrir verðmætasköpun á Íslandi. Hann hélt því fram að ráðuneytið hefði þrengt að fyrirtækinu án þess að hitta fulltrúa þess eða veita skýringar.
„Ég æski þess að hæstv. ráðherra upplýsi þingið hér og nú um hvort til standi að kæfa þetta fyrirtæki,“ sagði Sigmundur Davíð. „Þetta er ekki hægt, þeir sem eru að reka gott og öflugt fyrirtæki eiga ekki að þurfa að búa við slíka óvissu.“
Hann gagnrýndi ráðherra fyrir að hafa ekki tekið fund með forsvarsmönnum Vélfags og sagði að um væri að ræða fyrirtæki í eigu bæði íslenskra og erlendra aðila frá EES-ríkjum, þar á meðal Liechtenstein og Sviss.
Þorgerður Katrín svaraði því til að málið væri í ferli hjá utanríkisráðuneytinu og að hún vildi ekki tjá sig frekar á meðan það væri til meðferðar. Hún sagði að farið væri eftir stjórnsýslulögum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.
„Við þurfum að hafa heildarsamhengi hlutanna í huga,“ sagði ráðherrann. „Markmið Rússa er að grafa undan stöðugleika í Evrópu og við verðum að gæta þess að Ísland lendi ekki aftur á gráum lista. Það hefði stórfellt tjón í för með sér fyrir samfélagið.“
Þorgerður bætti við að ráðuneytið hefði verið í samskiptum við Vélfag og lögfræðinga þess og minnti á að íslenskum fjármálastofnunum bæri samkvæmt lögum að frysta fjármuni aðila sem sæta alþjóðlegri frystingu.
Sigmundur Davíð sagði svör ráðherrans ófullnægjandi og sakaði hana um dylgjur, þ.e. að fyrirtækið hefði brotið alþjóðareglur.
„Ef ráðherra telur það, þá þarf hún einfaldlega að segja það og færa rök,“ sagði hann. „Ekki neita að gefa upplýsingar og vísa í stríðið í Úkraínu. Hvað kemur það þessu máli við?“
Hann sagði að utanríkisráðherra hefði „gaman af því að gleðja útlendinga“ og varaði við að ráðuneytið væri að beita íslenskt fyrirtæki órétti.
Í lok umræðunnar sagði Þorgerður Katrín að um væri að ræða fyrsta mál sinnar tegundar sem kæmi til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum í tengslum við alþjóðlegar þvingunaraðgerðir.
„Við þurfum að vanda okkur,“ sagði hún. „Það eru miklir hagsmunir undir og við munum hafa hagsmuni Íslands í huga þegar við afgreiðum málið.“
Hún tók fram að ráðuneytið ynni samkvæmt íslenskum lögum og skuldbindingum Íslands gagnvart alþjóðasamfélaginu og að hún hygðist ekki tjá sig frekar að svo stöddu.