#. 95 - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið

Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa.

Þetta er meðal þess sem tekið er fyrir á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn. Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube, og er öllum aðgengileg. 

Embættismenn á embættismenn ofan

Þar mæta til leiks þeir Árni Helgason, lögmaður, stjórnmálamaður og rithöfundur og Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu og ræða helstu fréttir vikunnar. Þar bera mál ríkislögreglustjóra hátt en einnig ítarleg skýrsla um helstu embættismannakerfi veraldarsögunnar þar sem rök eru færð fyrir því að kjörnir fulltrúar eigi að hafa sem minnst með stjórn landsins að gera.

Afgreiðsla þingsins

Þá setjast þeir einnig niður á Spursmálavettvangi samstarfsmennirnir og mótherjarnir í þinginu, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Jón Pétur Zimsen, varaformaður hennar.

Þeir komu báðir að ákvörðun í sumar sem leið sem leiddi til þess að bandaríska gjörgæsluhjúkrunarfræðingnum, Joanne Blank, var neitað um ríkisborgararétt. Hún talar íslensku og hefur haft tengsl við landið allt frá árinu 1990 þegar hún kom hingað til lands sem skiptinemi. Hún starfar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þar sem veikustu skjólstæðingar spítalans liggja.

Að manna stærsta vinnustað landsins

Í lok þáttar mætir svo Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans og ræðir einmitt mönnunarmál á þessum stærsta og einhverjum allra mikilvægasta vinnustað landsins. Hann ræðir meðal annars um mönnunarmál á spítalanum en einnig nýja Landspítalann sem tekur á sig æ skýrari mynd við Hringbraut.

Sneisafullur þáttur og fjörlegar umræður í Spursmálum á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

Árni Helgason, Andrés Magnússon, Runólfur Pálsson, Jón Pétur Zimsen og …
Árni Helgason, Andrés Magnússon, Runólfur Pálsson, Jón Pétur Zimsen og Víðir Reynisson eru gestir Spursmála að þessu sinni. Samsett mynd/mbl.is/María Matthíasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert