Reikna með arðgreiðslum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. mbl.is/Karítas

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur ekki áhyggjur af því að Orkuveitan geti ekki staðið undir skuldbindingum sínum með arðgreiðslur til borgarinnar, þrátt fyrir að álverinu á Grundartanga hafi verið lokað. 14% af tekjum OR koma frá álverinu.

„Norðurál hefur gefið út að fyrirtækið sé tryggt og við reiknum með því að það sé tryggt gagnvart skuldbindingum sínum við Orkuveituna. Orkuveitan er stórt og stöndugt fyrirtæki og stjórn þess þarf þá að endurskoða tekjuáætlun. Það eru margir aðrir sem vilja kaupa þessa orku, en Orkuveitan er skuldbundin þessum samningi og gerir ekki breytingu á neinu fyrr en allt er komið á hreint,“ segir Heiða sem kynnti í gær fjárhagsáætlun næsta árs.

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins segir áætlunina lýsa fullkomnu ábyrgðarleysi gagnvart þeirri stöðu sem blasir við.

„Það er óábyrgt við þessar aðstæður að reiða sig á byggingarréttargreiðslur upp á 4 milljarða og 6,1 milljarðs arðgreiðslu til borgarinnar frá OR þrátt fyrir að óvissa ríki vegna lokunar á Grundartanga.“

Nánar má lesa um málið á síðu 4 í Morgunblaðinu í dag og í Mogga-appinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert