Staðfesting á lögmætri vinnu ÍE mikill léttir

Hæstiréttur ógilti í dag ákvörðun Persónuverndar um meint brot ÍE …
Hæstiréttur ógilti í dag ákvörðun Persónuverndar um meint brot ÍE og Landspítala við söfnun og vistun blóðsýna í upphafi heimsfaraldurs COVID-19. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslensk erfðagreining (ÍE) telur mjög mikilvægt að skorið hafi verið úr um ákvörðun Persónuverndar um meint brot fyrirtækisins og Landspítala við söfnun og vistun blóðsýna í upphafi heimsfaraldurs COVID-19.

Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu ÍE.

Í tilkynningunni segir að nú sé ljóst hvaða stjórnvald fari með lögsögu um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði til framtíðar og að Persónuvernd geti ekki tekið ósamrýmanlegar stjórnvaldsákvarðanir um atriði sem að lögum falla undir valdsvið og lögsögu Vísindasiðanefndar.

Mikilvægt að skilin séu ljós

Einnig sé mikilvægt að það liggi ljóst fyrir hver séu skil heilbrigðis- og sóttvarnarráðstafana annars vegar og vísindarannsókna hins vegar, sér í lagi þegar aðsteðjandi heilbrigðisógn steðji að.

Hæstiréttur ógilti í dag ákvörðun Persónuverndar frá 23. nóvember 2021 um meint brot ÍE og Landspítala. Þannig sneri Hæstiréttur við dómi Landsréttar og lagði til grundvallar að á tímabilinu 3-7. apríl 2020 hafi meðferð og varðveisla blóðsýna hjá ÍE alfarið verið í þágu Landspítalans.

Í tilkynningu ÍE segir að Hæstiréttur staðfesti enn fremur að Persónuvernd hafi farið inn á valdsvið Vísindasiðanefndar með því að leggja sjálfstætt mat á hvort blóðsýnatakan hefði verið samkvæmt lögum um vísindarannsóknir, þegar Vísindasiðanefnd hafði komist að gagnstæðri niðurstöðu um sama efni. Það sé mikilvæg niðurstaða sem varði lögsögu vísindarannsókna til framtíðar.

Verulegar brotalamir

Hæstiréttur telur að verulegar brotalamir hafi verið í málsmeðferð Persónuverndar að því er segir í tilkynningunni.

Fram kemur í dómi Hæstaréttar að það hafi ekki verið samrýmanlegt rannsóknarskyldu Persónuverndar að byggja ákvörðun sína að verulegu leyti á misræmi sem Persónuvernd taldi vera í gögnum málsins með þeim afleiðingum að ÍE og Landspítali bæru halla af. Dómurinn telur það brjóta gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga, svo sem segir í tilkynningu ÍE.

„ÍE fagnar niðurstöðu Hæstaréttar Íslands. Mikilvægt er að einkafyrirtæki sem svara kalli stjórnvalda í almannavarnaástandi geti treyst því að stjórnvöld hafi fyrir því lögmætar heimildir. Ekki síst þegar fyrirtækið leggur til á annað hundrað starfsmanna, sérhæfðan og öflugan tækjabúnað, aðstöðu og vísindaþekkingu án endurgjalds.

ÍE og starfsfólk þess svaraði strax kalli stjórnarvalda á hættulegum tímum. Það er því mikill léttir fyrir alla þá sem þar komu að verki, að nú hafi verið staðfest að sú vinna var lögmæt og framkvæmd á réttum forsendum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka