Vasaþjófar á höfuðborgarsvæðinu hafa að undanförnu stolið þremur greiðslukortum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við þjófunum, sem hafa meðal annars haft mikið fé af eldri borgurum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þrjú mál hafa verið tilkynnt um þjófnað á greiðslukortum að undanförnu og í tveimur þeirra eru brotaþolar karlmenn komnir á eftirlaunaaldur.
„Talið er að þjófarnir hafi fylgst með mönnunum slá inn PIN-númer í verslunum, fylgt þeim síðan eftir og þá stolið veskjunum úr vösum þeirra. Eftirleikurinn var svo auðveldur, en þjófarnir tóku út talsvert fé af reikningum mannanna,“ segir í tilkynningu.
Í þriðja tilvikinu varð erlendur ferðamaður fyrir barðinu á vasaþjófum sem voru á kreiki við Hallgrímskirkju, en þeir stálu greiðslukortum af honum.
Lögreglan minnir fólk á að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn og eins að upplýsingar um PIN-númer séu ekki geymdar með greiðslukortum.
