MÁLEFNI

Ljósmyndakeppni Íslands

SkjárEinn, mbl.is og Stórveldið standa að Ljósmyndakeppni Íslands. Efnt var til ljósmyndasamkeppni á mbl.is á haustdögum. Um 1500 myndir bárust en átta keppendur voru valdir til þátttöku í sjónvarpsþáttaröð á SkjáEinum. Keppendurnir átta spreyta sig á einu þema í hverjum sjónvarpsþætti. Almenningi gefst í aðdraganda hvers þáttar kostur á að keppa um sama þema inni á mbl.is.
RSS