Lögreglumenn áttu fund með Ingibjörgu Sólrúnu vegna Borgarnesræðu

Stjórn Landssambands lögreglumanna átti fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur vegna ýmissa ummæla hennar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Borgarnesi. Segir í yfirlýsingu frá stjórn Landssambands lögreglumanna að Ingibjörg hafi á fundinum með henni skýrt mál sitt betur og tekið af allan vafa um að hún hafi ekki ætlað með orðum sínum að vega að lögreglunni á neinn hátt.

Í yfirlýsingu lögreglumanna segir að ræða Ingibjargar Sólrúnar í Borgarnesi og tilsvör hennar í fjölmiðlum í framhaldi af því hafi vakið undrun og óánægju innan raða lögreglunnar. Skilja hafi mátt orð hennar svo, að aðrar en faglegar ástæður geti legið að baki opinberri rannsókn sem tengist tilteknum fyrirtækjum á Íslandi.

Stjórn Landssambands lögreglumanna segist telja það ábyrgðarhlut að maður í stöðu Ingibjargar Sólrúnar tjái sig um þessi mál með þeim hætti sem hún gerði og leggja megi þann skilning í ummæli hennar, að hún hafi í raun verið að vega að starfsheiðri lögreglunnar og eftir atvikum ákveðnum eftirlitsstofnunum ríkisins.

Þá segir í yfirlýsingunni að Ingibjörg Sólrún hafi fullyrt að dregið hafi verulega úr trausti á öllum helstu stofnunum samtímans og nefnt þar ýmsar til sögunnar þar á meðal lögreglu. Segja lögreglumenn að það gangi þvert á niðurstöður allra viðhorfskannana sem gerðar hafi verið síðustu ár, en þær sýni að yfir 70% landsmanna beri traust til lögreglunnar. Engin önnur stofnun hafi áunnið sér slíkt traust almennings að undanskildum Háskóla Íslands.

„Ingibjörg Sólrún er mikilsmetinn stjórnmálamaður í íslensku samfélagi sem nær athygli almennings. Stjórn Landssambands lögreglumanna þótti því með öllu óskiljanlegt hvað henni gekk til með málflutningi sínum sem var til þess fallinn að grafa undan trausti almennings á stofnunum samfélagsins, þ.m.t. lögreglunni.

Af þessu tilefni sendi stjórn Landssambands lögreglumanna bréf til Ingibjargar og óskaði skýringa á ummælum hennar. Í framhaldi af því átti stjórn Landssambands lögreglumanna fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að hennar beiðni. Þar skýrði hún mál sitt betur og tók af allan vafa um það að hún hafi ekki með orðum sínum ætlað að vega að lögreglunni á nokkurn hátt og hafi orð hennar verið túlkuð á þann veg þótti henni það miður. Að fengnum hennar skýringum er málinu lokið af hálfu Landssambands lögreglumanna.

Stjórn Landssambands lögreglumanna frábiður sér að störf lögreglunnar séu dregin inn í pólitískar umræður með þessum hætti," segir síðan í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert