Sjálfstæðisflokkur og VG bæta við sig í Reykjavík

Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin-grænt framboð bæta við sig fylgi í Reykjavík samkvæmt þriðju raðkönnuninni, sem Gallup hefur gert fyrir Ríkisútvarpið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 47% og fær flokkurinn samkvæmt því 8 bæjarfulltrúa af 15. Fylgi VG mælist 16% og fær flokkurinn 2 fulltrúa en litlu munar að flokkurinn fái þriðja fulltrúann á kostnað 8. manns sjálfstæðismanna.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 25% og fær flokkurinn 4 borgarfulltrúa samkvæmt því. Fylgi Frjálslynda flokksins mælist tæp 7% og fær flokkurinn 1 fulltrúa en fylgi Framsóknarflokks mælist 4,7% og engan mann kjörinn samkvæmt könnuninni.

Gallup kannar fylgi flokkanna í Reykjavík daglega fram að kosningum. Úrtakið er alltaf 800 manns, 400 fyrstu detta út og 400 nýir bætast við á hverjum degi. Þannig er hægt að mæla hreyfingu á fylginu.

Í gær mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 45% en mældist 43% á sunnudag. Fylgi Samfylkingarinnar rúm 27% en var 32% í könnun Gallup á sunnudag. Vinstrihreyfingin-grænt framboð mældist með tæplega 15% fylgi í gær en var með 11% á sunnudag. Fylgi Frjálslynda flokksins mældist 8,1% í gær en var um 10% í sunnudag. Framsóknarflokkurinn var með 3,9 í könnun á sunnudag en mældist með 4,2% í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert