Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór ræða prófkjörsslag

Guðlaugur Þór og Björn Bjarnason á leið á ríkisstjórnarfund.
Guðlaugur Þór og Björn Bjarnason á leið á ríkisstjórnarfund. Brynjar Gauti

Birni Bjarnasyni og Guðlaugi Þór Þórðarsynir lýstur saman í bloggheimum. Björn Bjarnason vísar til fyrri prófkjörsátaka þeirra árið 2007 og segir:

„Eitt er að takast á við pólitíska andstæðinga í öðrum stjórnmálaflokkum, annað að glíma við andstæðinga innan eigin flokks. Prófkjörin leiða oft til harðra átaka af því tagi,“ segir Björn og heldur áfram: „Fyrir þingkosningarnar 1995 ákvað Geir H. Haarde að sækjast eftir þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, en ég hafði verið kjörinn í þriðja sætið í prófkjöri fyrir þingkosningarnar 1991 og stefndi að því að halda því, sem tókst. Fyrir þingkosningarnar 2007 ákvað Guðlaugur Þór Þórðarson að keppa við mig um annað sætið á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík, en ég hafði færst upp í það, þegar Davíð Oddsson hvarf af þingi. Guðlaugur Þór hafði betur í þeim slag. Ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar, vitað eins mikið á sig lagt við að ná sæti á lista.“

Guðlaugur Þór svarar Birni á bloggi sínu og segir:

„Björn Bjarnason segir á bloggsíðu sinni að engin hafi lagt meira á sig til að vinna prófkjör en undirritaður. Það er skemmst frá því að segja að ég hef alltaf lagt mjög mikið á mig í mínu pólitíska starfi. Ég hef iðulega þurft að hafa fyrir hlutunum og ég tel það vera hollt fyrir alla að vinna þannig. Bæði í kosningum og einnig í þeim embættum sem að mér hefur verið treyst fyrir hef ég lagt mig allann fram. Ég lofa því að gera það áfram,“ segir Guðlaugur Þór.

Hann segir jafnframt: „Það prófkjör sem að Björn vísar til er þó ekki það erfiðasta eða mest krefjandi sem ég hef tekið þátt í.“

Umræðuefnið er eins og áður sefir prófkjörið fyrir alþingiskosningarnar 2007, þegar Guðlaugur Þór hafði betur í baráttu við Björn um 2. sæti listans í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert