Árni Mathiesen ekki í framboð

Árni M. Mathiesen.
Árni M. Mathiesen. mbl.is/Ómar

Árni M. Mathiesen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, hefur sent kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, að hann ætli ekki að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í kjördæminu, sem haldið verður 14. mars.

„Á ferðum mínum um kjördæmið að undanförnu hefur berlega komið í ljós að mikill vilji er til breytinga innan Sjálfstæðisflokksins. Þessi afstaða er vel skiljanleg í ljósi þeirra erfiðleika sem þjóðin hefur gengið í gegnum á síðustu mánuðum og misserum. Þó ég sé allur af vilja gerður til þess að bregðast við þessu kalli um breytingar má ljóst vera að því eru takmörk sett hvað ég get gert í þeim  efnum af augljósum ástæðum. Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í prófkjöri flokksins þann 14. mars næstkomandi vegna kosninganna 25. apríl í vor. Það er hlutverk leiðtoga að leiða en það er líka nauðsynlegt fyrir leiðtoga að vita hvenær á að víkja," segir Árni m.a. í bréfinu. 

Fram kemur að á átján ára þingferli hafi Árni verið 1. þingmaður í þremur kjördæmum og ráðherra í tæp tíu ár í í ráðuneytum sjávarútvegs og fjármála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert