Flótti úr Frjálslynda flokknum

Formenn og varaformenn kjördæmasambanda Frjálslynda flokksins í Reykjavík sögðu af sér í vikunni og gengu úr flokknum. Tryggvi Agnarsson sagði í fréttum Ríkisútvarpsins, að flokkurinn væri stjórnlaus og sé að liðast í sundur.

Tveir þingmenn flokksins af fjórum, þeir Jón Magnússon og Kristinn H. Gunnarsson, hafa sagt sig úr flokknum. Jón er genginn í Sjálfstæðisflokk og að sögn Útvarpsins ætlar Kristinn að bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. Það yrði þá fjórði flokkurinn, sem Kristinn starfar með frá því hann var fyrst kjörinn á Alþingi 1991.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, sagði hins vegar að margir hefðu gengið til liðs við flokkinn að undanförnu. Sagðist Guðjón ekki ætla að segja af sér formennsku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert