Gæti kollvarpað fjármálalífinu

Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef peningastefnunefnd verði gert að opinbera áhyggjur sínar eins og seðlabankafrumvarpið feli í sér eftir síðustu breytingu, geti það leitt til þess að fjármálakerfið hrynji.

Breytingin var gerð eftir að skýrsla um fjármálastofnanir, sem unnin var fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, var lögð fyrir viðskiptanefnd. Sjálfstæðismenn vildu bíða skýrslunnar sem og Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins en afstaða hans olli titringi á stjórnarheimilinu.

Sigurður Kári segist þó ekki telja að það hafi verið mistök að bíða eftir skýrslunni. Þetta ákvæði gangi lengra en þar sé lagt til. Þar segir að gera skuli þar til bærum stjórnvöldum viðvart en samkvæmt frumvarpinu megi allt eins gera ráð fyrir að peningastefnunefndin haldi blaðamannafund.

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins segir hinsvegar að ákvæðið sé orðrétt úr skýrslunni. Menn hafi horft á það upp á síðkastið að það standi orð gegn orði um það hvort upplýsingum um ástandið hafi verið hvíslað að ákveðnum mönnum sem vilji svo jafnvel ekki kannast við það. Ef að Peningastefnunefnd meti það svo að það sé hætta á ferðinni eigi hún einfaldlega að vara við henni. Það hefði sparað mörg hundruð milljarða ef slíkar viðvaranir hefðu komið fram hér fyrir ári. Sjá MBL sjónvarp.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert