20 bjóða sig fram fyrir Samfylkingu í Reykjavík

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóhanna Sigurðardóttir bjóða sig fram í …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóhanna Sigurðardóttir bjóða sig fram í tvö efstu sætin.

Alls bárust framboð frá 20 frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem hefst mánudaginn 9. mars og lýkur laugardaginn 14. mars. Kjörið fer fram á netinu en hefðbundinn kjörstaður verður í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll. Kosið verður í 8 efstu sætin á framboðslistum Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.

Eftirtaldir 20 frambjóðendur taka þátt í prófkjörinu:

Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna
sækist eftir 5. sæti

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra
stefnir á 4. sætið sem er 2. sætið á framboðslista í öðru hvoru
kjördæminu.

Björgvin Valur Guðmundsson leiðbeinandi
sækist eftir 5. til 6. sæti

Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi
sækist eftir 5. til 6. sæti

Helgi Hjörvar þingmaður
sækist eftir 4. sæti

Hörður J. Oddfríðarson áfengis- og vímuefnaráðgjafi og formaður
Sundsambands Íslands
sækist eftir einu af 8 efstu sætunum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingmaður og formaður Samfylkingarinnar
sækist eftir 2. sæti

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
sækist eftir 1. sæti

Jón Daníelsson blaðamaður og þýðandi
sækist eftir einu af 8 efstu sætunum

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrv. formaður Alþýðuflokksins
sækist eftir einu af 8 fyrstu sætunum, með fyrirvara um breytingar á
kosningalögum

Mörður Árnason íslenskufræðingur
sækist eftir 4. sæti

Pétur Tyrfingsson sálfræðingur
sækist eftir einu af 8 fyrstu sætunum

Sigríður Arnardóttir félags- og fjölmiðlafræðingur
sækist eftir 5. til 6. sæti

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur og sagnfræðingur
sækist eftir 3. til 5 sæti

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir félagsráðgjafi og stjórnsýslufræðingur
sækist eftir 5. til 7. sæti

Skúli Helgason stjórnmálafræðingur
sækist eftir 4. sæti

Steinunn Valdís Óskarsdóttir þingmaður
býður sig fram í eitt af efstu sætunum

Sverrir Jensson veðurfræðingur
sækist eftir 4. til 8. sæti

Valgerður Bjarnadóttir sviðsstjóri
sækist eftir 1. til 4. sæti

Össur Skarphéðinsson iðnaðar- og utanríkisráðherra
sækist eftir 3. sæti


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert